|
Samþykkt
Fyrir Veiðifélag Landmannaafréttar, Rangárvallasýslu
1. gr.
Félagið heitir Veiðifélag Landmannaafréttar
og starfar á grundvelli gildandi laga um lax og silungsveiði.
Heimili og varnarþing er í Rangárvallasýslu.
2. gr.
Aðild að félginu eiga lögbýli í Holta-
og Landsveit, auk Hóla og Næfurholts í Rangárvallahreppi,
skv. arðskrá félagsins.
3. gr.
Félagssvæðið tekur yfir öll vötn á
Landmannaafrétti og aðrennsli þeirra svo og frárennsli
þeirra að Tungnaá, að undanskildu Þórisvatni
og Kirkjufellsvatni.
4. gr.
Verkefni félagsins er:
a) Að viðhalda veiði í þeim vötnum, sem
þegar er veiði í.
b) Að rækta fisk í þeim vötnum, sem fisklaus
eru, en talin eru vel fallin til fiskiræktar. Með því
að stilla veiði í hóf, með seiðasleppingum
og flutningi á lifandi silung milli vatna.
c) Að sjá um, að félagsmenn hafi aðgang að
ákveðnum veiðivötnum og megi stunda þar veiði
samkvæmt þeim reglum, er stjórn veiðifélagsins
setur þar um og samþykktar hafa verið á almennum
fundi í félaginu.
d) Rekstur eigna.
e) Sala veiðileyfa.
f) Gróður og náttúruvernd.
5. gr.
Enginn má stunda veiði á félagssvæðinu
nema með leyfi félagsstjórnar. Veiðimönnum
skal látið í té skriflegt veiðileyfi og er
þeim skylt að vera með það á sér
meðan þeir stunda veiðina og sýna það,
ef þess er óskað. Í leyfinu skal tekið fram
um veiðistað, veiðitíma og veiðitæki og með
hvaða kjörum leyfið er veitt.
6. gr.
a) Stjórn félagsins skipa fimm menn. Skulu þeir
kosnir á aðalfundi til þriggja ára í
senn. Ganga þeir úr stjórninni á víxl
þannig að einn skal ganga úr stjórn eftir eitt
ár, tveir eftir tvö ár og hinir eftir 3 ár,
og helst svo sama röð framvegis.
Varamenn í stjórn skulu vera fimm og kosnir á sama
hátt. Skoðunarmenn reikninga skulu vera tveir og kosnir til
tveggja ára. Sami háttur skal hafður um kosningu varaskoðunarmanna.
b) Stjórnin skiptir með sér verkum árlega að
loknum aðalfundi. Formaður skal vera aðalframkvæmdastjóri
félagsins, sjá um reikninga og fjárreiður þess
og boða til stjórnarfunda, ef hann eða aðrir stjórnarmenn
óska eftir.
c) Formaður ræður veiðiverði og aðra starfsmenn
í samráði við stjórn.
d) Aðalfundur skal haldinn í apríl eða maí
ár hvert. Á aðalfundi gefur stjórnin skýrslu
um starfsemi liðins árs og leggur fram starfsáætlun
fyrir næsta ár. Þá skal hún leggja
fram endurskoðaða reikninga félagsins.
7. gr.
Reikningsár félagsins er almanaksárið. Stjórninni
ber að halda gerðarbækur þar sem færðir
eru reikningar félagsins, svo og samþykktir þess og
fundargerðir.
8. gr.
Árlega skal aðalfundur taka ákvörðun um hvernig
fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsaárinu.
9. gr.
Samþykkt þessari má breyta á aðalfundi.
|