|
Fréttir af veiði í Veiðivötnum sumarið 2010 Veiðisumarið 2010 var besta árið frá upphafi skráningar (sjá samanburð milli ára) og slær út gamla metið frá síðasta ári. Alls veiddust 37369 fiskar. Þar af fengust 29713 fiskar á stöng (80%) og 7660 fiskar komu í net (20%). Alls veiddust 28837 fiskar á stangveiðitímanum 18. júní til 18. ágúst og 876 fiskar veiddust á stöng á netatímanum (20. ágúst - 20. september). Stangveiðin er heldur minni en á siðasta ári, sem nemur 508 fiskum. Á síðasta ári fengust 30221 fiskur á stöngina. Meðalþyngd fiska var umtalsvert hærri nú en í fyrra, 1.70 pd nú en 1.63 pd í fyrra. Stærsti fiskur sumarsins var dreginn úr Hraunvötnum og var 14.6 punda urriði. Stórir fiskar um og yfir 10 pund veiddust líka í Grænavatni, Ónefndavatni og í Litlasjó. |