|
Fréttir af veiði í Veiðivötnum sumarið 2009 Veiðisumarið 2009 var besta árið frá upphafi skráningar (sjá samanburð milli ára) og slær út gamla metið frá síðasta ári. Alls veiddust 36069 fiskar. Þar af fengust 30221 fiskur á stöng (84%) og 5848 fiskar komu í net (16%). Alls veiddust 29524 fiskar á stangveiðitímanum 19. júní til 19. ágúst og 697 fiskar veiddust á stöng á netatímanum (21. ágúst - 20. september). Á síðasta ári fengust 24893 fiskar á stöngina, svo aukningin milli ára er um 18%. Meðalþyngd fiska var einnig umtalsvert hærri nú en í fyrra, 1.63 pd nú en 1.44 pd í fyrra. Stærsti fiskur sumarsins var dreginn úr Hraunvötnum og var 14.4 pd. urriði. |