|
Eldri fréttir
Nýjustu fréttir eru á aðalsíðu .
- 8. júlí 2012
Dóra í Skarði hætt að selja veiðileyfi.
Undanfarna áratugi hefur Sigríður Theodóra Sæmundsdóttir í Skarði í Landsveit (Dóra í Skarði) selt veiðileyfi í vötn á Landmannaafrétti. Hún sá um veiðileyfasölu í Veiðivötn árin 1967 - 1999, en hélt áfram að selja veiðileyfi í vötn sunnan Tungnaár út síðasta veiðitímabil (2011). Skarð var því oft fyrsta stopp á leiðinni inn á fjöll. Nú er Dóra hætt að selja veiðileyfi svo framvegis verða veiðimenn í vötnum sunnan Tungnaár að versla sín leyfi í Landmannahelli eða í Landmannalaugum.
4. júlí 2012
Rafmagn í Veiðivötn
Stutt er síðan Veiðivatnasvæðið komst í almennilegt farsímasamband. Nú er það rafmagnið. Síðastliðið haust var lagður jarðstrengur inn í Veiðivötn og í vor var byrjað að tengja húsin hvert af öðru. Nú er komið rafmagn í átta hús. Húsin eru: Holt, Lindarhvammur, Setur, Land, Hraunkot, Hvammur, Arnarsetur og Ampi. Í húsunum er 2 hellur, tenglar, ljós og rafmagnsofnar. Unnið er að því að tengja önnur hús við kerfið og vonast til að öll hús verði tengd fyrir haustið.
23. júní 2012
Vandamál tengd lausagöngu hunda í Veiðivötnum
Að gefnu tilefni vilja veiðiverðir í Veiðivötnum benda hundafólki á að passa vel uppá hunda sína á svæðinu.
Brögð eru að því að hundar þefi uppi beituleifar og öngla á vatnsbökkum. Slíkt hefur leitt til innvortis blæðinga og dauða.
Varp fugla er nú í hámarki og margar tegundir liggja á eggjum fram í miðjan júlí. Hundar eyðileggja varp fugla ekki síður en minkar og refir. Þetta á ekki hvað síst við um svæðið umhverfis Tjaldvatn og skálana. Hafið því hundana ávallt tjóðraða á svæðinu.
Fastur opnunartími í Veiðivötnum
Ákveðið hefur verið að frá og með sumrinu 2012 hefjist veiðitímabilið í Veiðivötnum kl. 15 þann 18. júní. Fram að þessu var ávallt miðað við að tímabilið byrjaði á föstudegi. Veiðimenn sem eru vanir því að opnunin byrji á helgi geta því þurft að sætta sig við það að opnunin hitti ekki á frídaga nema á nokkra ára fresti.
Stangveiði í Veiðivötnum sumarið 2012 hófst mánudaginn 18. júní kl. 15 og lýkur miðvikudaginn 22. ágúst kl. 15. Sími í Veiðivötnum er: 864-9205
Gjaldskrá á veiðileyfum og gistingu (hús, svefnpokapláss í skála, tjaldstæði og húsbílar/tjaldvagnar) í Veiðivötnum fyrir sumarið 2012.
Verð fyrir hverja stöng / dag - 18. júní - 1. júlí. |
kr. 9.000- |
| Verð fyrir hverja stöng / dag - 1. júlí - 24. ágúst. |
kr. 8.000- |
| 5-7 manna hús / dag (lítil hús). |
kr. 9.000- |
| 8-12 manna hús / dag (stór hús). |
kr. 11.500- |
| Litla herbergi í skálanum |
kr. 8.000- |
| Salur í skálanum (15-20 manna) / dag. |
kr. 17.500- |
| Svefnpokapláss á loftinu í skálanum / mann / dag. |
kr. 1.850- |
| Verð fyrir hvert tjald á tjaldstæði / dag. |
kr. 2.000- |
| Verð fyrir gistingu í húsbíl og í tjaldvagni / dag. |
kr. 2.000- |
|
|
- 7. ágúst 2012
Metavika í Veiðivötnum
Ný met voru slegin í 7. viku. Veiðin var sú besta í 7. viku frá upphafi skráningar, 2581 fiskur kom á land. Þetta var jafnframt næstbesta vika sumarsins (sjá samanburð á milli ára).
Annað met var slegið að kvöldi 1. ágúst en þá veiddist 8.2 kg (16.4 pund / 18.0 ensk pund) urriði í Grænavatni. Fiskurinn er 83 cm lengd og ummálið er 50 cm. Fiskurinn fékkst á fluguna „Svartur köttur“. Veiðimaðurinn heitir Haukur Böðvarsson.
Þetta er stærsti fiskur sem fengist hefur á stöng í Veiðivötnum.
Kunnugir telja að margir svona stórir leynist í Grænavatni svo ef til vill eiga fleiri álíka eða stærri eftir að koma þar á land.
Í vikunni veiddist lang mest í Stóra Fossvatni. Þar komu 1017 fiskar á land. Eins og undanfarin ár var opnað fyrir veiðar með beitu og spún á Síldarplaninu 1. ágúst. Annars er aðeins leyfð veiði á flugu í Fossvötnunum. Fólk á öllum aldri mokveiddi á beitu fystu dagana eftir opnun og skýrir það þessa miklu aflaaukningu í Stóra Fossvatni.
Ágætlega veiddist í Litlasjó, 560 fiskar komu þar á land í vikunni. Einnig fékkst góður afli í Langavatni, Nýjavatni, Breiðavatni og Skyggnisvatni.
Heildarveiðin í Veiðivötnum er komin í 166276 fiska og meðalþyngdin er tæp 2.0 pd. Stærsti fiskurinn er 16.4 pd. urriði úr Grænavatni.
Sjá nánar...
 |

Metfiskurinn úr Grænavatni.
Ljósmyndir: Bryndís Magnúsdóttir |
- 7. ágúst 2012
Holt er laust 18. - 20. ágúst - Selt
Af sérstökum ástæðum er Holt laust til útleigu laugardaginn 18. til mánudagsins 20. ágúst (tvær nætur). Þar er svefnpláss fyrir allt að átta menn. Veiðileyfi fylgja með. Rafmagn er komið í þetta hús.
Frekari upplýsingar hjá veiðivörðum í Veiðivötnum í síma 864-9205.
- 18. júlí 2012
Stóri Salurinn er laus 23. - 25. júlí - Selt
Af sérstökum ástæðum er stóri Salurinn laus til útleigu mánudaginn 23. til miðvikudagsins 25. júlí (tvær nætur). Þar er svefnpláss fyrir allt að tuttugu manns. Slatti af veiðileyfum fylgir með.
Frekari upplýsingar hjá veiðivörðum í Veiðivötnum í síma 864-9205.
- 21. júní 2012
Skipti á húsi og veiðileyfum
Helga, sem á bókað hús og veiðileyfi í Veiðivötnum 27-29 júlí óskar eftir því að skipta við einhvern á dögum.
Hún er með húsið Bjalla og 3 stangir.
Áhugasamir geta sent Helgu póst á netfangið: helgama87@hotmail.com.
- 30. sept. 2011
Lokatölur í Veiðivötnum - 2011
Sunnudaginn 18. september lauk veiðitímabilinu í Veiðivötnum. Á þessu veiðiári var fyrirkomulagi veiðanna breytt frá því sem áður var. Stangveiðitíminn var frá 17. júní til 24. ágúst, viku lengur en áður, tíu vikur í stað níu vikna. Netatíminn styttist, var frá 26. ágúst til 18. september. Á stangveiðitímanum veiddust 21240 fiskar sem er talsvert minni afli en undanfarin þrjú ár, en svipað og sumarið 2007. Sumarið 2011 telst vera fimmta besta stangveiðiár í Veiðivötnum frá upphafi (sjá samanburð). Líklega má kenna kuldatíð framan af sumri um lægri aflatölur að þessu sinni, en undanfarin sumur hafa verið sérlega hagstæð lífríkinu í Veiðivötnum og aflabrögð eftir því.
Á netatímanum komu 5997 fiskar í netin en 829 fiskar fengust á stöng. Heildarveiðin í Veiðivötnum var 28066 fiskar. Árið 2011 er fjórða besta veiðiárið frá upphafi skráninga. (sjá samanburð).
Eins og oft áður var mestur afli úr Litlasjó. Þar veiddust 6514 fiskar á stöng og 1238 fiskar komu í netin. Næst á eftir var Stóra Fossvatn með 2552 fiska allt á stöng. Bæði þessi vötn eru hrein urriðavötn. Langavatn var í þriðja sæti með 2392 fiska, mest bleikjur. Yfir 1000 fiskar fengust úr Snjóölduvatni, Kvíslarvatni, Nýjavatni og í Hraunvötnum.
Meðalþyngd allra fiska á stangveiðitímanum var 1,79 pd sem er mjög gott. Fara þarf mörg ár aftur í tímann til að finna álíka meðalþyngd. Hæst var meðalþyngdin í Ónefndavatni, 3,58 pd. og úr Grænavatni, 3,18 pd. og þar veiddist einnig þyngsti fiskurinn, 12,6 pd. í síðustu vikunni. Meðalþyngd í Litlasjó var 2,82 pd.
Undanfarin ár hefur bleikjan verið að sækja á í Veiðivötnum. Skyggnisvatn, Langavatn, Eskivatn, Kvíslarvatn, Nýjavatn og Tjaldvatn eru ofsetin af smábleikju en í Snjóölduvatni, Krókspolli og Breiðavatni má enn fá góðar bleikjur í bland við urriða. Sumarið 2011 veiddust 13782 urriðar (65%) og 7458 bleikjur (35%) á stangveiðitímanum. Þetta er svipað hlutfall og undanfarin 2-3 ár (sjá samanburð).
Sjá nánar...
Myndir af veiði og veiðimönnum - 2011
30. ágúst 2011
Nýjar aflatölur úr vötnum sunnan Tungnaár
Veiði hófst í vötnum sunnan Tungnaár 19. júní. Það sem af er sumri hefur mest veiðst í Frostastaðavatni 976 fiskar. Alls hafa 1418 fiskar veiðst á stöng í vötnunum.
Sjá nánar...
Veiðileyfi eru seld í Skarði í Landsveit (Dóra), Landmannahelli og Landmannalaugum. Ekki er þörf á að panta veiðileyfi fyrirfram. Veiði er leyfð til 20. september. Hægt er að panta gistingu við Landmannahelli í síma 893 8407 og info@landmannahellir.is. Nánari upplýsingar um staðinn er á: www.landmannahellir.is
- 23. júlí 2011
Fastur opnunartími í Veiðivötnum
Ákveðið hefur verið að frá og með næsta sumri (2012) hefjist veiðitímabilið í Veiðivötnum kl. 15 þann 18. júní. Fram að þessu var ávallt miðað við að tímabilið byrjaði á föstudegi. Veiðimenn sem eru vanir því að opnunin byrji á helgi geta því þurft að sætta sig við það að opnunin hitti ekki á frídaga nema á nokkra ára fresti.
16. júlí 2011
Vandamál tengd lausagöngu hunda í Veiðivötnum
Að gefnu tilefni vilja veiðiverðir í Veiðivötnum benda hundafólki á að passa vel uppá hunda sína á svæðinu.
Bæði eru brögð að því að hundar þefi uppi beituleifar og öngla á vatnsbökkum. Slíkt hefur leitt til innvortis blæðinga og dauða.
Einnig er varp seint fyrir á Veiðivatnasvæðinu þetta árið. Hundar eyðileggja varp fugla ekki síður en minkar og refir. Þetta á ekki hvað síst við um svæðið umhverfis Tjaldvatn og skálana. Hafið því hundana ávallt tjóðraða á svæðinu.
- 17. maí 2011
Pantanir fyrir sumarið 2011
Stangveiði í Veiðivötnum sumarið 2011 hefst föstudaginn 17. júní kl. 15 og lýkur miðvikudaginn 24. ágúst kl. 15.
Sala á veiðileyfum og gistingu í Veiðivötnum fyrir sumarið 2011 hófst föstudaginn
1. apríl 2011 kl. 9.
Staðan 17. maí.
Öll hús eru uppseld. Allar stangir eru seldar nema nokkrar virka daga í ágúst.
Þá er möguleiki á gistingu á tjaldsvæði eða í svefnpoka plássi.
Athugið að húsin eru ekki með hita og eldunartæki og annað sem þarf til eldamensku
þarf að taka með. Þeir sem eru að koma í fyrsta skifti geta haft samband
í síma 864-9205 ef spurningar vakna.
Aðeins verður tekið við pöntunum í síma 864-9205 (ekki verður hægt að panta með tölvupósti eða á annan hátt). Aðeins tekið við pöntunum kl. 9-12 á virkum dögum. Netaveiðirétthafar athugið. Netaveiðin er frá 26. ágúst til 18. september á næsta veiðitímabili, því færist bókanir aftur um viku frá því sem áður hefur verið. Gott væri að netaveiðimenn staðfesti bókanir sem fyrst.
Gjaldskrá verður óbreytt frá síðasta ári.
Gjaldskrá á veiðileyfum og gistingu (hús, svefnpokapláss í skála, tjaldstæði og húsbílar/tjaldvagnar) í Veiðivötnum fyrir sumarið 2011.
-
Verð fyrir hverja stöng / dag - 17. júní - 1. júlí. |
kr. 8.000- |
| Verð fyrir hverja stöng / dag - 1. júlí - 24. ágúst. |
kr. 7.000- |
| 5-6 manna hús / dag (lítil hús + Dvergastein). |
kr. 7.500- |
| 7-12 manna hús / dag (stór hús). |
kr. 9.000- |
| Litla herbergi í skálanum |
kr. 6.500- |
| Salur í skálanum (15-20 manna) / dag. |
kr. 15.000- |
| Svefnpokapláss á loftinu í skálanum / mann / dag. |
kr. 1.500- |
| Verð fyrir hvert tjald á tjaldstæði / dag. |
kr. 1.500- |
| Verð fyrir gistingu í húsbíl og í tjaldvagni / dag. |
kr. 1.500- |
|
|
- 7. ágúst 2010
Nýjar aflatölur úr vötnum sunnan Tungnaár
Opnað var fyrir veiði í vötn sunnan Tungnaár föstudaginn 11. júní. Veiði hefur verið góð það sem af er sumri. Mest hefur veiðst í Frostastaðavatni ,817 fiskar. Alls hafa 2163 fiskar veiðst á stöng í vötnunum. Sjá nánar...
Veiðileyfi eru seld í Skarði í Landsveit (Dóra), Landmannahelli og Landmannalaugum. Ekki er þörf á að panta veiðileyfi fyrirfram. Veiði er leyfð til 20. september. Hægt er að panta gistingu við Landmannahelli í síma 893 8407 og info@landmannahellir.is. Nánari upplýsingar um staðinn er á: www.landmannahellir.is
 |
7. nóv. 2010
Í október var ráðist í lagfæringar á útfallinu úr Litla Fossvatni. Fossbrúnin var hækkuð og styrkt og gerð brattari. Með þessu á að minnka líkur því að bleikja komist upp fossinn og setjist að í Fossvötnunum. Undanfarin ár hefur nokkuð sést af smábleikju í kvíslinni neðan við fossinn.
Ljósmynd: Bryndís Magnúsdóttir |
- 5. ágúst 2010
Hættulegur vegkafli við Vatnsfellsvirkjun
Vegfarendur til Veiðivatna eru varaðir við veginum yfir hálsinn við Vatnsfellsvirkjun. Vegurinn er með laust yfirborð og gróft þvottabretti. Þarna hafa orðið slys þegar of hratt er farið niður brekkurnar. Vinsamlegast farið varlega. Að öðru leyti er vegurinn til Veiðivatna óvenju góður.
- 1. apríl 2010
Allt uppselt í Veiðivötnum.
Öll gistiaðstaða og veiðileyfi eru uppseld í Veiðivötum fyrir sumarið 2010.
All fishing permits and accommodation have been booked for the year 2010.
Gjaldskrá á veiðileyfum og gistingu (hús, svefnpokapláss í skála, tjaldstæði og húsbílar/tjaldvagnar) í Veiðivötnum sumarið 2010. ATH. öll verð eru óbreytt frá síðasta ári. Sími í Veiðivötnum er: 864 9205
Verð fyrir hverja stöng / dag - 18. júní - 1. júlí. |
kr. 8.000- |
| Verð fyrir hverja stöng / dag - 1. júlí - 18. ágúst. |
kr. 7.000- |
| 5-6 manna hús / dag (lítil hús + Dvergastein). |
kr. 7.500- |
| 7-12 manna hús / dag (stór hús). |
kr. 9.000- |
| Litla herbergi í skálanum |
kr. 6.500- |
| Salur í skálanum (15-20 manna) / dag. |
kr. 15.000- |
| Svefnpokapláss á loftinu í skálanum / mann / dag. |
kr. 1.500- |
| Verð fyrir hvert tjald á tjaldstæði / dag. |
kr. 1.500- |
| Verð fyrir gistingu í húsbíl og í tjaldvagni / dag. |
kr. 1.500- |
-
15. ágúst 2007
Góð veiði í vötnum sunnan Tungnaár
...en veiðimenn latir við að skila inn upplýsingum um veiðina.
Sjá nánar...
-
30. nóv. 2007
Jólamynd fyrir Vatnakarla
Miðvikudaginn 28. nóv. var kvikmyndin Vatnalíf frumsýnd í Selfossbíói. Myndin er 90 mín löng heimildamynd um einstaka náttúru Veiðivatna, sögu veiða og Vatnakarla. Myndin hlaut mjög góða dóma hjá frumsýningargestum.
Gunnar Sigurgeirsson ljósmyndari og kvikmyndagerðarmaður á Selfossi hefur unnið að gerð myndarinnar síðustu 4 árin.
Myndin er komin út á DVD og verður dreift í verslanir um land allt.
Til hamingju Gunnar með flotta mynd.
-
14. ágúst 2007
Í ágúst veiðast að jafnaði stærstu fiskarnir í Veiðivötnum. Nú í sumar hafa óvenjumargir vænir urriðar komið á land. Undanfarnar tvær vikur má segja að daglega hafi 8-10 pd. fiskar veiðst. Flestir stórfiskar veiðast að jafnaði í Hraunvötnum og í Litlasjó en nú í ágúst hafa einnig komið stórir fiskar á land í Stóra Fossvatni, Skyggnisvatni, Litla Breiðavatni og Ónefndavatni.
Myndir af nokkrum stórum fiskum og stoltum veiðimönnum eru komnar á Veiðivatnavefinn. Sjá myndir....
- 10. ágúst 2007
Enn met í Veiðivötnum.
Enn eitt metið var slegið í 7. viku, en þá komu á land 2298 fiskar sem er meiri afli en áður hefur fengist á þessum tíma sumars.
Í vikunni veiddust nokkrir stórfiskar á óvenjulegum stöðum. Í Stóra Fossvatni veiddust 8,0 og 10.0 pd. fiskar. Skyggnisvatn gaf nokkra væna urriða, upp í 9,8 pd. og úr Litla Breiðavatni kom 9,2 pd. fiskur. Einnig veiddust stórir fiskar í Hraunvötnum, Litlasjó og Snjóölduvatni.
Litlisjór, Ónýtavatn og Langavatn gáfu mestann afla í síðustu viku.
Alls hafa veiðst 18651 fiskur í Veiðivötnum það sem af er sumri.
- 3. ágúst 2007
Metveiði í 6. viku.
Enn eitt metið var slegið í 6. viku, en þá komu á land 1882 fiskar sem er meiri afli en áður hefur fengist á þessum tíma sumars (sjá samanburð).
Í vikunni veiddust nokkrir stórfiskar. Bæði í Hraunvötnum og Ónefndavatni komu á land 11,4 pd. fiskar.
Litlasjór, Nýjavatn og Langavatn gáfu mestann afla í síðustu viku en heldur hefur dregið úr veiði í Hraunvötnum frá því sem var.
Alls hafa veiðst 16353 fiskar í Veiðivötnum það sem af er sumri.
- 7. júlí 2007
Áfram mokfiskast í Veiðivötnum.
Veiði var frábær í fyrstu viku og enn betri í annari viku en þá veiddust 4228 fiskar. Í síðustu viku veiddist best í Litlasjó, 1183 fiskar. Skyggnisvatn gaf einnig vel en þar veiddust 824 fiskar. Alls hafa veiðst 1945 fiskar í Litlasjó í sumar sem verður að teljast frábær veiði. Samanborið við undanfarin ár þá er mun meiri veiði nú í Veiðivötnum en áður hefur sést.
- 1. júlí 2007
Frábær veiði í 1. viku.
Veiði hófst í Veiðivötnum 22. júní. Í fyrstu vikunni var sólríkt og þurrt og frábær veiði. Alls komu 4218 silungar á land (2078 urriðar og 2140 bleikju). Í 1. viku í fyrra veiddust 3458 fiskar (806 urriðar og 2652 bleikjur). Meðalþyngdin var svipuð og undanfarin ár eða 1.39 pd. Flestir fiskar komu úr Nýjavatni (886) og Litlasjó (762). Veiði var aftur á móti mjög dræm í Fossvötnunum, aðeins tveir fiskar úr hvoru vatni.
- 28. okt . 2006
Veiðivötn - lokatölur 2006
Sumarið 2006 var enn eitt afburða veiðisumarið í Veiðivötnum. Á stöng veiddust 16.639 fiskar, 8540 urriðar (51,3%) og 8099 bleikjur (48,7%). Þetta eru litlu færri fiskar en veiddust metsumarið 2005. Veiði í net var svipuð og áður eða um 3939 fiskar. Samtals komu á land í Veiðivötnum 20.578 fiskar. Sjá samanburð við fyrri ár.
Stærsti fiskur sumarsins var 11.8 pd urriði sem veiddist á stöng í Hraunvötnum.
Hér fyrir neðan eru krækjur á síður með nánari upplýsingum um veiðina sumarið 2006.
- 7. júlí 2006
Nýtt á Veiðivatnavefnum.
Eins og sést hefur forsíða Veiðivatnavefsins breyst nokkuð. Þetta er gert til að auðvelda enn frekar aðgengi notenda að vinsælustu síðunum. Jafnframt hefur bæst við efni.
Sérstök krækja er nú komin á undirsíðu sem sýnir staðsetningu sjálfvirkra veðurstöðva í nágenni Veiðivatna. Þar er hægt að smella á nöfn veðurstöðvanna og komast þannig beint á síðu Veðurstofu Íslands.
Einnig hafa bæst við kort af vötnunum. Fyrirtækið Penta ehf var svo vinsamlegt að leyfa aðgang að kortum þeirra. Nú er hægt að skoða nákvæmlega útlínur helstu veiðivatna. Þar eru merkt inn helstu örnefni og veiðistaðir í hverju vatni og á næstunni munu bætast þar við myndir af vötnum og veiðistöðum.
- 19. júní 2006
Góð veiði í vötnum sunnan Tungnaár.
Veiði í vötnum sunnan Tungnaár hófst 16. júní og gékk mjög vel þessa fyrstu helgi. Alls komu 542 fiskar á land, þar af rúmlega 300 fiskar úr Löðmundarvatni. Einnig veiddist mjög vel í Frostastaðavatni og náðist þar 6 punda bleikja á flugu rétt fyrir neðan bílastæðið. Stærsti fiskur úr Dómadalsvatni var 5 pd urriði og 4 pd bleikja kom á land úr Löðmundarvatni.
Vikulega verða uppfærðar á Veiðivatnavefnum fréttir af veiði úr vötnum sunnan Tungnaár líkt og úr Veiðivötnum.
Veiðileyfi í vötnin sunnan Tungnaár eru seld í Skarði í Landsveit, Landmannahelli og í Landmannalaugum. Leyfið kostar kr. 2000 pr. stöng. Hægt er að panta gistipláss í Landmannahelli og eru enn laus gistipláss í sumar, einkum í miðri viku. Sjá nánar: http://www.landmannahellir.is/index.htm.
Á vefslóðinni: http://www.veidivotn.is/sunnant/index.html er hægt að kynna sér vötnin sunnan Tungnaár nánar.
- 17. júní 2006
Góð veiði.
Vel veiddist fyrsta veiðidaginn í Veiðivötum. Mest var veiðin í Nýjavatni þar sem menn fengu margar fallegar bleikjur, allt að 6 pundum. Bleikjan veiddist jafnt á flugur og spinnera. Silvraður reflex gaf sérstaklega vel. Einnig veiddist vel í Langavatni og Kvíslarvatni og nokkrir vænir urriðar (4-5 pd) komu á land í Grænavatni.
Í sumar verður sama fyrirkomulag á birtingu veiðitalna og undanfarin sumur, veiðtölur verða birtar eftir hverja veiðiviku. Tölur fyrir hverja viku munu birtast á netinu á laugardögum.
- 14. júní 2006
Fluguveiði.
Föstudaginn 16. júní kl. 15:00 hefst veiði í Veiðivötnum.
Líkt og undanfarin ár verður aðeins leyfð veiði á flugu (með flugustöng) í Fossvötnum og Litla Breiðavatni.
Síðastliðið sumar var leyfð veiði með öðru agni (beita, spúnn) á Síldarplaninu í Stóra Fossvatni frá 1. ágúst. Sama fyrirkomulag verður nú í sumar.
- 17. júní 2006
Sala á veiðileyfum og leiga á
húsum fyrir sumarið 2006.
Stangveiði í Veiðivötnum höfst 16. júní og líkur 20. ágúst.
Sala á veiðileyfum og gistiplássi hófst 1. apríl
2006. Nokkuð er enn eftir af leyfum og húsum (sjá töflu neðar á síðunni).
Aðeins verður tekið við pöntunum í síma 864-9205. Ekki tala inná talhólfið.
Ekki verður hægt að panta gegnum aðra síma eða eftir öðrum leiðum.
- 4. nóv.
2005
Besta veiðisumarið.
Veiði lauk í Veiðivötnum 18. september. Alls veiddust
20785 fiskar í sumar, 16766 fiskar á stöng og 4019
fiskar í net. Það er mesti afli sem vitað er um
í Veiðivötnum og þar með var metið frá
árinu 1977 slegið.
Hér fyrir neðan eru gröf sem annars vegar sýna
samanburð á veiði á stangveiðitímanum
í Veiðivötnum árin 2000-2005 og hins vegar heildarveiði
(stöng + net) á sama tímabili.

|