Þrjár fisktegundir
finnast í Veiðivötnum; urriði (Salmo trutta),
bleikja (Salvelinus alpinus) og hornsíli (Gasterosteus
aculeatus).
Veiðimálastofnun undir stjórn Magnúsar Jóhannssonar
hefur rannsakað fiskinn í Veiðivötnum frá
árinu 1985.
Megintilgangurinn hefur verið að fylgjast með ástandi
fiskistofnanna með áherslu á nýliðun urriða
og ástand og vöxt sleppiseiða og ungfiska.Einnig hefur
útbreiðsla og viðgangur bleikju verið athuguð.
Rannsóknirnar eru unnar fyrir Veiðifélag Landmannaafréttar.